|
|
19.04.2007 22:04:38 / hugij
Þetta verður sennilega mín síðasta færsla... í bili a.m.k. Lífið
gengur sinn vanagang og ég geri ekki ráð fyrir því að margir
gráti þessa síðu.
Hins vegar notast ég við annan vettvang í tilkynningarskyldunni
ef ég fer út í haust. Berlin er þar ofarlega á listanum yfir
líklegustu viðkomustaði, en Rússland, Ítalía, Belgía, Frakkland,
Noregur, Danmörk og Pólland eru hins vegar freistandi sömuleiðis!
Þetta þýðir að ég er kominn með smá valkvíða... en ég hlýt að finna
mér góðan kennara einhversstaðar.
Þá vil ég nota þetta tækifæri til að bjóða öllum í Salinn,
Kópavogi þann 21.apríl kl fimm. Þar held ég tónleikana sem áætlaðir
voru í desember sl.
Góðar stundir
Hugi
»
05.12.2006 22:35:45 / hugij
Já, það var ákveðið eftir æfinguna í gær og tímann í dag, að ég
væri hreinlega ekki tilbúinn til að flytja þessa tónleika eins vel
og mig langar til og get. Og þar hafið þið það.
Það er mjög erfitt að kyngja þessu, en í fyrsta skipti á æfinni
kveið ég fyrir eigin tónleikum, og það er ekki nógu gott. Ég
er fyrst og fremst að þessu fyrir sjálfan mig, til þess að læra og
njóta þess að syngja. Ekki til þess að ljúka einhverju prófi.
Ég vona bara að sem flestir skelli sér á synfóníutónleikana í
staðinn og sjái geggjaða mezzósópran með flotta efnisskrá!
»
04.12.2006 14:26:00 / hugij
Já aðventukvöldið í gær heppnaðist bara þokkalega svei mér þá.
A.m.k. sá hluti sem ég sá. Ég dreif mig nefnilega beint í fótbolta!
Það væri svo sem ekki í frásögur færandi, nema að eftir tíu mínútna
leik var ég skallaður og fékk u.þ.b. tommu skurð á ennið, rétt
fyrir neðan hársvörðinn og lóðrétt niður. Fór beint upp á læknavakt
og var saumaður saman. Þetta gerist á albesta tíma. Tónleikarnir
mínir á laugardaginn og fyrirsöngur í London þann 12.
Annars er sjálfsagt bara flott og karlmannlegt að vera með
glóðarauga og saum í enninu...
Lifi fótboltinn!
»
03.12.2006 16:16:10 / hugij
Þar er ég að syngja með kórnum og afbragðs hljómsveit. Mikið verður
um dýrðir og allir reyna að komast í jólaskapið.... nema ég. Ég
ætla nefnilega að stinga af um leið og sálmasyrpan er búinn til
þess að ná á fótboltaæfingu!
Ég er að spá í að vera svo aðeins lengur eftir æfingu og æfa mig í
því að halda bolta á lofti svo ég geti orðið gjaldgengur í liðinu
mínu, Tottenham, sem skíttapaði fyrir erkiféndunum í Arse... í gær.
Þá ætla ég sko að sýna þeim hvernig á að gera þetta!
Að minnsta kosti sendi ég Jolla stjóra tæknilegar ráðleggingar í
formi hugskeyta þegar ég las fótboltafréttirnar á klósettinu í
morgun.
»
20.11.2006 19:02:36 / hugij
Köben var aldeilis frábær. Kennarinn var alletíðers og bjórinn
bragðgóður. Regína og Þráinn voru svo höfðingleg að leyfa mér að
gista og voru sérlega skemmtileg í ofanálag.
Helgi Berg gaf mér góð ráð í reiðhjólabraskinu og kom ég heim með
fínustu bremsur og gjarðasett á gjafarverði, auk þess sem þau
Þórunn eru góður félagsskapur. Hvort ég dembi mér í inntökupróf í
Danmörku verður ákveðið fljótlega...
»
03.11.2006 09:24:16 / hugij
Ég fer og hitti hinn vonandiágæta Johannes Mannov á eftir, og
stuttu síðar kennarann hennar Regínu.
Annars þurfti ég að bíða í klukkutíma eftir töskuni minni á
kastrup og átti, því miður, heilan poka af Dumle karmellum. Til að
gera langa sögu stutta vaknaði ég með slæmt tilfelli af andlitsbjúg
í morgun og verk í maganum. Ég á ekki heilan poka af Dumle
karamellum lengur.
En hei, hvað gat ég svosem gert í klukkutíma annað en að
borða?
»
02.11.2006 09:31:25 / hugij
Nú verður klakinn yfirgefinn og Konungsins Köben heimsótt enn einu
sinni
»
26.10.2006 09:46:16 / hugij
Vaknaði, skjálfandi kaldur, fyrir stuttu síðan og fannst ég ætti að
fara uppí sófa með heitt súkkulaði og bók! Svo þurfti ég
náttúrulega að sætta mig við að það væri ekki jóladagur og er að
fara í skólann... En ég keypti miða á Sykurmolana í gær!
17.nóvember verður einn af hápunktum haustsins.
»
24.10.2006 09:30:22 / hugij
Ég hef ekki fengið neinn
klámfenginn póst frá þessu minnsirkus dæmi, svo ég hef ákveðið
að brjóta odd af oflæti mínu og skrifa nokkrar línur í
viðbót.... ef einhver les þetta þ.e.a.s.
Mig hefur bara ekkert langað að blogga fyrr en nú.
Margt hefur gerst, og þá er helst að nefna að Allir virðast vera að
eignast börn, eða eru nýbúnir! Þetta er auðvitað gleðiefni og ég
samgleðst Öllum. Ég er farinn að syngja í skírnarathöfnum fyrir
vini mína og er því orðinn fullkomlega fullorðinn.
Það sem helst er að frétta er að ég býð til burtfararprófstónleika
í Iðnó þann 9. desember kl.16:30 og eru allir hjartanlega
velkomnir. Það er ekkert skemmtilegra en að syngja fyrir fullu húsi
og því hvet ég alla til að draga sem allra flesta með sér. Að
sjálfsögðu er frítt inn og snillingurinn Bjarni Jónatansson spilar
með mér á píanó, auk þess sem tveir vel valdir gestir troða upp með
mér.
»
19.04.2006 22:12:20 / hugij
Ég verð að segja eins og er að þetta ,,minn sirkus" er bara
þvæla. Kynnt með fyrirheit um rómantík og hvað eina.
Fífl! Ég á unnustu og kæri mig ekki um svona daður. Ég er hér með
hættur að blogga á þessari síðu.
Færi inn nýtt lén von bráðar
»
14.04.2006 12:56:10 / hugij
Nú er páskahreingerning í gangi. Ég er að reyna að skrifa án þess
að Berglind sjái, svo þetta verður stuttur pistill.
Mattheusarpassían hljómar yfir sápulyktinni og ryksugan öskrar í
bland annað slagið.
Í kvöld verða flottir tónleikar í Langholtskirkju sem ég ætla á
Ég ætla að halda áfram að þrífa!
»
12.04.2006 10:57:23 / hugij
Nú er þessu andleysi síðustu
mánaða lokið og nokkur orð fá sennilega að flakka á síðuna mína
á ný.
Ég fékk óbeit á því að blogga, og
nennti því ekki eins og glöggir lesendur hafa tekið
eftir.
Nú hefur Nótt í Feneyjum breyst í dag
á ný, og ég hef allt í einu ekkert að gera. Reyni að drullast til
að læra nýja texta og vinna heimavinnuna mína að öðru leiti, sem og
húsverk. Svo er bara gaman að skipuleggja og byrja að æfa fyrir
næstu tónleika.
Ég er ekki búinn að leita, og þar með
ekki búinn að finna mér vinnu í sumar. Uppástungur eru vel
þegnar.
»
13.02.2006 22:22:04 / hugij
... Guðný er svo elskuleg að draga mig inn í þetta klukk
fyrirbæri. Allt í lagi með það.
Hér kemur það!
Fjögur störf sem ég hef unnið við um ævina....
sextán ára að skúra, bónleysa og fl. skemmtilegt á næturnar í
Bónus, Ikea og fleiri spennandi stöðum. Ótrúlegt en satt entist ég
í þessu í nokkur ár með skóla. - Hellulagnir og almenn jarðvinna í
þrjú sumur. - Kristiansand insjeniörvesenet,
regn- og klóaklagnaviðhaldsvinna, auk ýmissa tilfallandi verkefna
eins og snjómokstur, kaffidrykkja og almenn leti.
- Þjónn á Jómfrúnni, síðar í Súlnasal og að lokum í
Hlégarði í nokkur ár.
Fjórar bíómyndir sem ég horfi á í gríð og
erg.... Pulp Fiction trónir í efsta sætinu, með um 50-60
skipti. - The Nightmare before Christmas er í
öðru - The Goonies var í tækinu í nokkra mánuði fyrir
um 15 árum, og er alltaf næstum komin í það aftur. -
Shawshank Redemption, síðust á listanum, en alls ekki síst. Annars
á ég eftir að uppgötva ansi margar bíómyndir, rétt eins og bækur
sem ég hef aldrei tíma til að lesa.
Fjórir staðir sem ég hef búið á... Lindarbraut
2 á Seltjarnarnesi er upphafsreiturinn. - Markholt 6
tók við og aldi mig fram að 19 ára aldri. -
Vardåsveijen 57, nýtt hús en þó að hruni komið,(Kristiansand) þar
sem ég vann við að vera latur í eitt ár. - Sólvallagata
34, 101. Mig langar aftur í Vesturbæinn!!!
Fjórir góðir sjónvarpsþættir... Married,
with children, eru viðbjóðslega fyndnir þættir. - Little
Britain eru óborganlegir. - Spaugstofan, hafa nánast
alið mig upp, hvort sem ykkur finnst þeir fyndnir eður ei.
- Ég sakna Futurama.
Fernt á vefnum annað en blogg...
enskiboltinn.is - pósturinn minn... uuu...? Ég er svo
lítill netverji að ég neyðist til að segja pass.
Fernir staðir heimsóttir í fríi...
Arnarstapi ætti að vera mitt annað heimili, en er það ekki.
- Berlin, skemmtileg og svolítið skrítin borg.
- Oslo... í allra bænum, farið eitthvert annað í
frí! - Lignano... Lúðrasveitaferðir sem voru
ógleymanlegar.
Matur (þið fattið núna að ég ætla að nefna
fernt).... Plokkfiskurinn hennar mömmu með rúgbrauði og fullt af
smjöri er, og mun ávallt verða það besta sem ég fæ. -
Ég drekk alveg ógeðslega mikið af kaffi, sé það gott.... æi, bara
allt of mikið kaffi yfir höfuð. - Gott
rauðvín er minn akkilesarhæll. - LAKKRÍS og
SÚKKULAÐI
Hvað fjóra staði annarstaðar en akkúrat hér
varðar, langar mig eiginlega bara að vera þar sem ég er.... nema
kanski að vera uppi á sviðinu á Metropolitan að syngja aðalhlutverk
í Verdi óperu.
Fernar konur í mínu lífi... Mamma er
alltaf best. - Natalia Portman.
- aæsldkfj - Berglind Ýr,
verðandi konan mín (fædd 1.april 1980), er fallegust og hreint
út sagt æðisleg.
Ég ætla að klukka alla sem lesa þetta og hafa ekki enn verið
klukkaðir... sem sagt engan!
»
08.02.2006 15:36:13 / hugij
Ég heiti Hugi, og er svolítill sauður.
Ég var nefnilega svo óskaplega sniðugur að eyða laugardeginum í
afslöppun og örlitla öldrykkju. Komrate Tobbi og ég fengum okkur
yndislegan Víetnamskan mat og sötruðum öl yfir fótbolta. Þaðan lá
leiðin á frumsýningu lítillar Mozart óperu úr Hans Eisler skólanum.
Tobbi var Dé Joð og tryllti lýðinn eftir tveimur ágætis
hljómsveitum sem héldu uppi fjörinu þar til við byrjuðum að þeita
geislaplötum. Á meðan þessu stóð fór ég að sækja meiri
,,Pour-boire" í hraðbanka rétt hjá... í um tveggja km fjarlægð. Tók
svo leigubíl aftur sem tók um hálftíma, því hann talaði varla
þýsku, og enga ensku, og fór með mig að röngu tónlistarhúsi. Eftir
afar skemmtilegt rifrildi við leigubílstjórann greiddi ég hálft
gjald, 6e, og hélt áfram skemmtuninni til kl.sex, hálf sjö þegar
við loksins fórum heim, ekkert hræðilega ölvaðir... en nokkuð þó.
Vandamálið var hinsvegar að ég þurfti að vakna um átta til að ná
fluginu til London. Þar brást mér bogalistin, og ég hentist út í
leigubíl, kílómeter neðar í götunni og bað hann að flýta sér út á
flugvöll. Ja, naturlich!, og áfram fórum við á um tuttugu til
fjörtíukílómetra hraða út á völl. Ég lenti þarna á öllum rauðum
ljósum sem til eru, og ,,Driving-miss-Daisy" bílstjórinn minn,
vildi fá að vita allt um Ísland og var ofsalega indæll... ég þunnur
og veikur (sem ég er reyndar enþá) of seinn í flug og übertoll! Ég
kom á völlinn rúmum þrjátíu mínútum fyrir brottför, leitaði að Ryan
Air check in í tvær, þrjár mínútur og þegar ég komst loksins, stóðu
tvær ógeðslega ljótar og asnalegar kellingar brosandi og sögðu
,,zorry, ví ar zklósd". ég sem var bara með handfarangur, n.b.
,grátbað með mínum mýkstu augum um miskun, en þá kom... ,,No vei...
regúleizion". Þá beit ég fast í handabakið á mér og gekk hljóðlega
niður á neðri hæðina til að vera ekki handtekinn sem hver annar
flugdólgur. Flugmiði á síðustu stundu er ekki mjög ódýr, en ég
komst til Londrais um einum og hálfum tíma síðar...
London er yndisleg borg. Þar keypti ég mér Tottenham treyju og
húfu. Borðaði subbulegan mat og horfði á fótbolta með aðra höndina
á pænti og poka af krisps eins og venjan er í krúnuveldinu forna.
Bragi, nýja kaffivélin hans og Haffi fá kærar þakkir fyrir gott
atlæti í þessari góðu borg.
»
04.02.2006 11:00:44 / hugij
Vorsingen gekk bara mjög vel... alveg þangað til að ég missti
röddina í seinni ariunni, búinn að vera með hita og er enn með
hálsbólgu, en gömlu konurnar í nefndinni hölluðu sér allavega fram
á borðið og brostu út að eyrum í þeirri fyrri. Þetta var í það
minnsta frábær reynsla og gaman að skoða sig um í Deutche
Oper.
Nóg um það. Við fórum að sjá Händel, Alcina, í Komiche Oper
í gærkvöldi. Fyrri hálfleikurinn var hreint hræðilegur og mig
minnir að það séu uþb 65 kastarar framan á balkónunum. Þarna voru
þó nokkrir klassasöngvarar og yfir heildina bara mjög gaman. Tókum
strikið á Oskar Wilde og röðuðum í okkur samlokum og bjór við
undirleik hræðilega lélegs japansks trúbadors. Enduðum kvöldið á
billiard og meiri bjór og sofnuðum yndislega fullir við að
skipuleggja tónlist fyrir partí kvöldsins.
»
Síður: 1 2 3
|
|